Stefna og markmið Fyrstu fimm
-
Að gera Ísland að barn og fjölskylduvænna samfélagi
-
Að Ísland verði í fararbroddi þegar kemur að stöðu barna
-
Að innleitt verði meðgönguorlof frá 36 viku meðgöngu
-
Að fæðingarorlof verði lengt til 18 mánaða
-
Að maki/aðstandandi fái umönnunarorlof fyrsta mánuð eftir fæðingu barns
-
Að draga úr álagi á fjölskyldur svo þær geti stutt betur við börn sín á fyrstu og viðkvæmustu árunum.
-
Að beita okkur fyrir mikilvægi forvarna, hvata, stuðnings og foreldrafræðslu strax frá meðgöngu
-
Að einstaklingar hafi lagalegan rétt til að lækka starfshlutfall og auka sveigjanleika til að sinna umönnun barna sinna til 5 ára aldurs
-
Að taka afstöðu með leikskólasamfélaginu um að skilyrði verði með besta móti í leikskólum landsins fyrir börn og starfsfólk
-
Að leggja áherslu á mikilvægi öruggrar og virðingaríkrar tengslamyndunar á milli barna og umönnunaraðila þeirra
-
Að styðja áköll „Fyrsti 1001 dagurinn“, Barnaheilla, Geðhjálpar, Geðverndar og 70/30 verkefnis WaveTrust í Bretlandi
-
Að auka val fjölskyldna þegar kemur að umönnun barna á fyrstu æviárunum*